- Þú ert hér »
The Swell Season

The Swell Season til Íslands
Dúettinn The Swell Season er væntanlegur til Íslands og heldur tónleika á Nasa við Austurvöll fimmtudaginn 28. október n.k.
The Swell Season skipa írski tónlistarmaðurinn Glen Hansard og tékkneska tónlistarkonan Marketa Irglova. Glen er meðal annars þekktur sem forsprakki írsku sveitarinnar The Frames.
The Swell Season gáfu út frumraun sína samnefnda sveitinni 2006 og vakti platan nokkra eftirtekt.
Árið 2007 fór svo heldur betur að draga til tíðinda hjá Glen og Marketu. Þau léku bæði í óháðu írsku myndinni "Once" ásamt því að gera tónlistina við myndina. "Once" sló óvænt í gegn á heimsvísu og varð stærsta óháða myndin árið 2007. Lagið "Falling Slowly" úr myndinni hlaut síðan hvorki meira né minna en Óskarsverðlaunin árið 2008 fyrir besta frumsamda lag í kvikmynd og má með sanni segja að The Swell Season hafi stimplað sig rækilega inn þá.
"Falling Slowly" úr myndinni "Once"
Árin 2007 - 2008 eyddu The Swell Season tíma sínum að mestu í tónleikaferðalög um heiminn í kjölfar frumsýningar "Once" og útgáfu tónlistarinnar úr myndinni. Í byrjun árs 2009 komu þau svo saman í hljóðveri upptökustjórans Peter Katis og tóku upp aðra plötu sína "Strict Joy" sem kom út í lok síðasta árs. Peter Katis hefur td. tekið upp hljómplötur með Interpol, The National og Jónsa.
"Strict Joy" hefur verið afar vel tekið í Bandaríkjunum og Bretlandi og hafa The Swell Season m.a. komið fram í öllum helstu sjónvarpsþáttum Bandaríkjana í kjölfar útgáfunnar auk þess sem Glen Hansard "lék" í einum Simpson þætti.
The Swell Season eru nú stödd á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og munu meðal annars spila á hinum virta 18.000 manna útitónleikastað Hollywood Bowl í Los Angeles. Áður en þau koma hingað til tónleikhalds á hinum 500 manna Nasa við Austurvöll munu þau hafa gert viðreist í Brasilíu, Kanada, Bretlandi og Evrópu auk Bandaríkjana.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 28.10.10 - Fimmtudagur | 21:30 | The Swell Season - Tónleikar | Nasa | ks / tss | 4.900 kr. |


