KK

Vegbúinn – KK í Háskólabíó , ásamt vinum og vandamönnum.
Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson, KK fagnar á þessum ári 25 ára starfsafmæli.
KK kom sem ferskur blær inn í íslenskt tónlistarlíf árið 1991 með plötu sinni Lucky One og hefur allar götur síðan verið eitt stærsta nafnið í íslenskri tónlist. KK hefur gert 8 plötur í sínu nafni, 5 plötur í samstarfi við Magnús Eiríksson, 2 plötur með hljómsveit sinni KK Band , eina jólaplötu með systur sinni Ellen Kristjánsdóttur sem og fjöldan allann af tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir, þar ber hæst tónlist hans í verkunum Þrúgur Reiðinnar og Fjölskyldan.
KK ætlar að fagna þessum tímamótum og halda tónleika í Háskólabíói laugardaginn 11.september kl 21:00
Þar ætlar KK að fara yfir ferilinn í tali og tónum og fá til sín góða gesti. Hljómsveitin verður svo undir styrkri stjórn Eyþórs Gunnarssonar.
Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.
Miðasala á tónleikana
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 11.09.10 - Laugardagur | 21:00 | KK - Afmælistónleikar | Háskólabíó | prime ehf | 3.900 kr. |


