- Þú ert hér »
Regína Ósk

Þetta eru sjöttu tónleikarnir í Salnum þar sem Söngkonan Regína Ósk fer yfir öll bestu lög Carpenters. Karen Carpenter hefði orðið 60 ára mars síðastliðinn, en hún lést aðeins 32 ára gömul þegar hún var á toppnum. Regína uppgötvaði Carpenters og þá sérstaklega Karen Carpenter þegar hún var 14 ára og hefur síðan verið með þessa tónleika á stefnuskránni í nokkur ár.
Með Regínu verður flott hljómsveit sem að skipa:
Pálmi Sigurhjartarson Píanó/Raddir,
Kristján Grétarsson gítar/raddir,
Hannes Friðbjarnarson trommur/raddir,
Friðrik Sturluson Bassi/raddir og
Haraldur V. Sveinbjörnsson hljómborð/gítar/raddir.
Þau rifja upp perlur Carpenters ásamt áhorfendum á yndislegri kvöldstund.
Gestasöngvari er Páll Óskar.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 01.10.10 - Föstudagur | 21:00 | Regína Ósk - Carpenterslögin | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.300 kr. |
| 07.04.11 - Fimmtudagur | 21:00 | Regína Ósk - Carpenterslögin | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.300 kr. |

