Jónsi

Lýkur heimstónleikaferð sinni á Íslandi
Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, lýkur heimstónleikaferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember n.k.
Í byrjun apríl gaf Jónsi út sína fyrstu sólóplötu 'go' sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda um allan heim. "go" inniheldur níu lög eftir Jónsa sem sungin eru bæði á íslensku og ensku. Um upptökustjórn sáu Jónsi, Alex Somers og Peter Katis sem hefur m.a. unnið með Interpol, The National og The Swell Season.
Í kjölfar útgáfu "go" lagði Jónsi af stað í mjög metnaðarfulla tónleikaferð um heiminn sem stendur enn yfir. Áður en Jónsi stígur á svið í Laugardalshöllinni á lokatónleikum ferðalagsins mun hann ásamt hljómsveit hafa spilað á einum 99 tónleikum í Norður Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Asíu, þar á meðal tónlistarhátíðunum Coachella, Summer Sonic, Öya, Pukkelpop, Electric Picnic og Bestival.
Tónleikaferð Jónsa hefur vakið mikla eftirtekt enda hefur Jónsi ferðast um með afar metnaðarfulla sviðsmynd. Jónsi leitaði til framleiðslufyrirtækisins 59 Productions og ljósahönnuðarins Phil Eddolls í London við hönnun sviðsmyndarinnar. Tónleikum Jónsa hefur verið lýst sem suðupotti tónlistar, kvikmynda, leikhús, innsetninga, teiknimynda og tónleika og hafa erlendir miðlar keppst við að hlaða þá lofi.
Tónlistaráhugafólk á því sannarlega von á mjög forvitnilegum tónleikum Jónsa í Laugardalshöll.
-Sérstakt verð fyrir unglinga 13 - 16 ára-
Aðgöngumiðaverð í forsölu á tónleika Jónsa er eftirfarandi:
Stæði: 3.900.- kr. // 2.000 miðar í boði.
Stúka: 4.900.- kr. // 900 miðar í boði. - UPPSELT
Bekkir: 1.000.- kr. // Einungis fyrir 13 - 16 ára, 300 miðar í boði.
Jónsi hefur ákveðið að gefa 300 unglingum á aldrinum 13 - 16 ára tækifæri að komast á tónleikana á miðaverði sem það ræður við eða 1.000.- kr. og verður staðsetning þeirra á bekkjunum fyrir neðan stúkuna. Þetta fyrirkomulag var einnig á tónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll i lok árs 2008 og mæltist vel fyrir hjá unglingunum og foreldrum þeirra.
Aðgöngumiðar fyrir 13 - 16 ára verða einungis seldir á skrifstofu midi.is, Fákafeni 11, 2. hæð gegn skilríkjum og getur hver unglingur keypt einn miða á tónleikana. Opið er virka daga milli 9 - 17.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 29.12.10 - Miðvikudagur | 20:00 | Jónsi - Stæði / Standing | Laugardalshöll - Stæði | ks / j | 3.900 kr. |
| 29.12.10 - Miðvikudagur | 20:00 | Jónsi - Númeruð sæti / Numbered seats | Laugardalshöll - Stúka | ks / j | 4.900 kr. |


