Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns heldur sannkallaða stórtónleika í Laugardalshöll laugardaginn 13. nóvember. Tilefnið er útgáfa nýjustu plötu Sálarinnar, "Upp og niður stigann", sem út kemur í október og er fyrsta stúdíóplata sveitarinnar frá árinu 2005. Sálinni til fulltingis á þessum tónleikum verða nokkrir aðstoðarmenn og munar þar líkast til mestu um 13 manna vaska sveit blásara úr Stórsveit Reykjavíkur, en óhætt er að fullyrða að þar sé um að ræða fremstu brassmenn lýðveldisins. Lúðrablástur er nokkuð áberandi á plötunni nýju og er það liður í viðleitni Sálverja að útvíkka hljóm bandsins.

Dagskrá tónleikanna verður tvískipt, en leikin verða nokkuð jöfnum höndum lög af nýju plötunni og þekkt lög frá ferli sveitarinnar, sem skreytt verða kraftmiklum lúðrablæstri.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir Sálaráhangendur sem og unnendur íslenskrar dægurtónlistar. Einungis verður um þessa einu tónleika að ræða og verða þeir ekki endurteknir. Miðasla hefst 13. október á miði.is. Höllin verður stóluð upp og fjöldi miða því takmarkaður að sama skapi. Miðaverð verður 4.500 í sal og 3.500 í stúku.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
13.11.10 - Laugardagur 21:00 Sálin Hans Jóns Míns - Tónleikar Laugardalshöll Sálin Hans Jóns Míns 4.500 kr. / 3.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash