Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Söngvaskáldið Svavar Knútur hefur sent frá sér nýjan geisladisk sem hljóðritaður var á stofutónleikum í október síðastliðnum. Af því tilefni heldur hann útgáfutónleikar í Þjóðmenningarhúsinu. Á dagskárnni eru ýmis lög sem Svavar Knútur hefur tekið ástfóstri við í gegnum tíðina, en plötuna tileinkar hann ömmum sínum þar sem lögin eru flest komin til ára sinna og hafa verið sungin af eldri kynslóðum. Öll lögin nema eitt eru í útsetningum söngvaskáldsins sem leikur ýmist undir á gítar eða ukulele, en í einu lagi kemur píanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson við sögu og í öðru lagi ljá Karítur Íslands raddir sínar til að auka á blæbrigðin. Að öðru leyti er hér um hreinræktaða trúbadúrplötu að ræða. Meðal söngva á diskinum eru Kvöldið er fagurt, Draumalandið, Sofðu unga ástin mín, Næturljóð úr Fjörðum og nýtt lag Svavars við Álfareiðina.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
25.11.10 - Fimmtudagur 21:00 Svavar Knútur og Amma - Tónleikar Þjóðmenningarhúsið Dimma ehf 1.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash