Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Hinn landskunni píanóleikari og organisti Gunnar Gunnarsson hefur sent frá sér fjölda geisladiska sem hlotið hafa einróma lof. Í tilefni af útkomu nýjustu afurðar sinnar, sem nefnist Gnótt, efnir hann til tónleika og leikur ásamt valinkunnum meðspilurum bæði nýtt og eldra efni. Með Gunnari koma fram þeir Tómas R. Einarsson bassaleikari og Ómar Guðjónsson gítarleikari. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að heyra eðalfínar útsetningar Gunnars á lögum sem hitt hafa margan manninn í hjartastað. Hljóðritanir Gunnars er m.a. að finna á geisladiskunum Skálm, Stef, Des, Húm og Hrím, en nú bætist Gnótt í þann fríða flokk.

Flytjendur:
Gunnar Gunnarsson píanó, Tómas R. Einarsson kontrabassi, Ómar Guðjónsson gítar

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
02.12.10 - Fimmtudagur 21:00 Gnótt - Gunnar Gunnarsson og félagar Þjóðmenningarhúsið Dimma ehf 2.000 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim