Árstíðir

Á Þorláksmessukvöld efnir hljómsveitin Árstíðir til sinna árlegu jólatónleika í Fríkirkjunni. Samkvæmt hefð verða flutt jólalög sem eru meðlimum sveitarinnar kær, auk vel valinna laga af frumburði sveitarinnar, samnefndum henni.
Hljómsveitin vakti fyrst athygli með útgáfu breiðskífu sinnar sumarið 2009 og tónleikaferð um landið í kjölfarið, og á liðnu ári hefur hún bætt um betur, en auk tónleikahalds víða innanlands fór hljómsveitin í tónleikaferð til Svíþjóðar til að fagna útgáfu breiðskífu sinnar þar, og lagði svo land undir fót á haustmánuðum og hélt til Rússlands . Meðlimir sveitarinnar hafa undanfarna mánuði setið sveittir við lagasmíðar fyrir næstu plötu Árstíða, sem væntanleg er 2011, og hver veit nema gestir fái nasasjón af þeirri vinnu á tónleikunum. Eitt er víst að gestir eiga von á ósvikinni jólastemningu.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 23.12.10 - Fimmtudagur | 22:00 | Árstíðir - Jólatónleikar | Fríkirkjan í Reykjavík | Árstíðir | 1.500 kr. |


