Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

ATH: UPPSELT Á ALLA ÞRENNA TÓNLEIKA OG FLEIRI TÓNLEIKUM VERÐUR EKKI BÆTT VIÐ

Björgvin Helgi Halldórsson, söngvari frá Hafnarfirði, heldur upp á sextíu ára afmæli sitt með tónleikum í Háskólabíói á sjálfan stórafmælisdaginn, laugardaginn 16. apríl, ásamt völdum hljóðfæraleikurum og góðum gestum.

Þar verður rifjaður upp einstakur ferill Björgvins í rúm 40 ár, allt frá því hann var kosinn poppstjarna ársins árið 1969 til dagsins í dag, með viðkomu hjá HLH, Brimkló, Lónlí Blu Boys, Eurovision og Hjartagosunum og jöfnum höndum sungin Íslandslög, rokklög, ballöður af dýrari tegundinni og kántrí.

Björgvin Halldórsson var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu síðastliðinn nýársdag fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. 

Staðfestir gestir í afmælinu eru: Eyjólfur Kristjánsson, Jóhanna Guðrún, Krummi, Mugison og Sigríður Thorlacius. Fastlega má búast við því að fleiri gestir bætist í fögnuðinn áður en yfir lýkur.

Hljómsveitin er sett saman í tilefni dagsins og er þannig skipuð:
Gítar: Jón Elfar Hafsteinsson
Gítar og steel: Sigurgeir Sigmundsson
Gítar og raddir: Eyjólfur Kristjánsson
Hljómborð og raddir: Þórir Úlfarsson
Bassi og raddir: Friðrik Sturluson
Slagverk og raddir: Hannes Friðbjörnsson
Trommur: Jóhann Hjörleifsson
Hammond: Þórir Baldursson

Þessir 60 ára afmælistónleikar verða á persónulegum nótum og mikil tónlistarveisla sem enginn lagviss maður ætti að missa af.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
16.04.11 - Laugardagur 16:00 Björgvin Halldórsson - Aukatónleikar - UPPSELT Háskólabíó Sena 4.900 kr.
16.04.11 - Laugardagur 20:00 Björgvin Halldórsson - 60 ára afmælistónleikar - UPPSELT Háskólabíó Sena 4.900 kr.
17.04.11 - Sunnudagur 20:00 Björgvin Halldórsson - Aukatónleikar - UPPSELT Háskólabíó Sena 4.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash