- Þú ert hér »
Tíbrá: Pláneturnar fyrir tvö píanó

PLÁNETURNAR FYRIR TVÖ PÍANÓ EFTIR GUSTAV HOLST
Tinna Þorsteinsdóttir og Dr. Kristín Jónína Taylor
Efnisskrá:
Gustav holst (1874-1934): Pláneturnar, Op. 32 fyrir tvö píanó (1914-1916)
György Ligeti (1923-2006): Three Pieces for Two Pianos (1976)
Gustav Holst samdi Pláneturnar upprunalega fyrir tvö píanó á árunum 1914-16, fyrir utan „Neptúnus“ sem var fyrir orgel. Þessi útgáfa var hinsvegar fyrst gefin út á nótum á árunum 1949-51, löngu eftir að frumflutningur verksins í hljómsveitarútgáfu fór fram árið 1918 á síðustu dögum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hljómsveitarsvítan er löngu orðin heimsþekkt eins og alkunna er. Það er athyglisvert að bera saman útgáfurnar tvær. Í píanóverkinu má heyra ákveðinn fyrirboða um litríka notkun Holst seinna meir á hljómsveitinni, en ber líka vitni um hvernig píanóið nær að framkalla þessi litbrigði á sinn eigin hátt. Sérstaklega í köflum eins og hinum mystíska Neptúnusi, Venusi og Satúrnus og tæknilega erfiðari þáttum eins og Merkúr og Júpíter. Upphaflega útgáfa verksins sem hér hljómar leyfir hlustandanum að upplifa verkið á nýjan og ferskan hátt.
Í Þremur verkum György Ligetis fyrir tvö píanó sem samin voru 1976 koma öll hans sterku höfundareinkenni fram, sem seinna má finna í hinum þekktu og krefjandi píanóetýðum hans. Þar má m.a. heyra tónferli í mörgum lögum sem skapa einskonar rytmablekkingu, flókinn speglakanon og kafla sem tónskáldið tileinkar amerísku tónskáldunum Steve Reich og Terry Riley, sem voru að vinna með samskonar hugmyndir í tónsmíðum sínum á sama tíma og Ligeti hinum megin við Atlantshafið, mínímalisma. Í þeim sama kafla má heyra tilvitnun og útfærslu á hinu fræga b-moll Prestói Chopins.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|


