- Þú ert hér »
Reykholtshátíð 2011

Reykholtshátíð 2011
22. júlí kl: 20:00 - Opnunartónleikar
Duo með fiðluleikurunum Auði Hafsteinsdóttur og Sigrúnu Eðvaldsdóttur. Art Vio Strengjakvartettinn frá Litháen leikur verk eftir Chopin og Mozart. Mona Kontra píanóleikari ásamt Sigrúnu Eðvaldsóttur, Pálínu Árnadóttur, Michael Stirling og Ásdísi Valdimarsdóttur leika hinn stórbrotna píanókvintett eftir Brahms.
23. júlí kl. 15:00 - Söngtónleikar: Læknirinn og ljósmyndarinn
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja þekkt íslensk sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns og Árna Thorsteinsson, auk laga sem sjaldan eða aldrei hafa verið flutt.
23. júlí kl. 20:00 - Listamenn frá Noregi, Litháen og Svíþjóð
Norsku listamennirnir Audun Sandvik selló og Geir Botnen píanó, flytja verk eftir Schumann og hina rómantísku Grieg sellósónötu. Litháenski kvartettinn Art Vio flytur verk eftir Schumann og píanókvartett Mahlers með Monu Kontra.
24. júlí kl. 16:00 - Hátíðartónleikar: 15 ára afmælistónleikar
Glæsilegir lokatónleikar hátíðarinnar þar sem flutt verða verk eftir Tveitt, Fauré, Dohnany, Brahms og hinn vinsæli strengjasextett Souvenir de Florence eftir Tchaikovsky. Fram koma Audun Sandvik selló, Ásdís Valdimarsdóttir víóla, Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó, Guðrún Þórarinsdóttir fiðla, Geir Botnen píanó, Michael Stirling selló, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla og Pálína Árnadóttir fiðla.
Reykholtshátíð 2011 er haldin 22-24 júlí nk. og fagnar nú 15 ára afmæli sínu. Reykholtshátíð er alþjóðleg tónlistarhátíð sem haldin er í einstöku sögulegu umhverfi Reykholts síðustu vikuna í júlí ár hvert Boðið verður upp á stórkostlega tónlist og frábæra listamenn frá Íslandi, Noregi, Litháen, Englandi og Svíþjóð. Allir tónleikar hátíðarinnar eru afar fjölbreyttir.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.07.11 - Föstudagur | 20:00 | Reykholtshátíð 2011 - Opnunartónleikar | Reykholtskirkja, Borgarfirði | Tónstef ehf. | 2.500 kr. |
| 23.07.11 - Laugardagur | 15:00 | Reykholtshátíð 2011 - Söngtónleikar: Læknirinn og ljósmyndarinn | Reykholtskirkja, Borgarfirði | Tónstef ehf. | 2.500 kr. |
| 23.07.11 - Laugardagur | 20:00 | Reykholtshátíð 2011 - Listamenn frá Noregi, Litháen og Svíþjóð | Reykholtskirkja, Borgarfirði | Tónstef ehf. | 2.500 kr. |
| 24.07.11 - Sunnudagur | 16:00 | Reykholtshátíð 2011 - Hátíðartónleikar: 15 ára afmælistónleikar | Reykholtskirkja, Borgarfirði | Tónstef ehf. | 2.500 kr. |


