Leoncie

Vegna gífulegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við auka tónleikum á Leoncie og Dr. Spock á Gamla Gauknum á laugardaginn.
Netsölu er nú lokið, miðasala á aukatónleika fer fram við inngang.
Gaukur á Stöng kynnir tónleika með hinni einu sönnu Icy Spicy Leoncie aðeins í þetta eina skipti á Íslandi.
Leoncie kemur beint frá Englandi til að koma fram á þessum einstöku tónleikum og mun hún leika öll sín helstu lög í bland við glænýja slagara. Einnig verður boðið upp á sérstaka videósýningu frá Indversku prinsessunni.
Hljómsveitin Dr. Spock sér um upphitun og plötusnúður mun halda fjörinu gangandi.
Það er klárt að hér er á ferðinni tónlistarviðburður ársins. Þú vilt svo sannarlega ekki missa af þessari upplifun.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 28.01.12 - Laugardagur | 19:00 | Leoncie - Aukatónleikar | Gaukur á Stöng | Gamli Gaukurinn | 2.000 kr. |
| 28.01.12 - Laugardagur | 22:00 | Leoncie - Uppselt | Gaukur á Stöng | Gamli Gaukurinn | 2.000 kr. |


