Töfrahurð

Á tónleikum Töfrahurðar er klassísk tónlist kynnt fyrir börnum á skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Leik, fræðslu og tónlist er blandað saman og taka börnin virkan þátt í tónleikunum. Allir eru hvattir til að mæta í búningum.
2. desember kl. 13:00
Englajól
Englajól er jólaballett eftir Elínu Gunnlaugsdóttur sem frumflutt var í Salnum árið 2010. Hugljúf jólagleði byggð á sögu eftir Guðrúnu Helgadóttur. Fram koma Kolbrún Anna Björnsdóttir, leikari, Kammerhópurinn Sheherazade ásamt dönsurum úr Listdansskóla Íslands og Skólakór Kársnesskóla undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sögumaður er Sigurþór Heimisson.
13. janúar kl. 13:00
Vínartónleikar
Vínartónleikar Töfrahurðar slógu í gegn í fyrra en þá var boðið upp á sannkallaðan nýársdansleik. Að þessu sinni mun konungur valsanna Jóhannes Strauss frá Vín mæta til leiks ásamt Mozart og fleirum. Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar mun spila talsvert í þrískiptum takti á meðan dansarar frá Listdansskóla Íslands taka sporið. Kynnar tónleikanna eru leikararnir Kolbrún Anna Björnsdóttir og Sigurþór Heimisson.
10. mars kl. 13:00
Strengir á tímaflakki
Á tónleikunum verður frumflutt tónlistarævinty´rið "Strengir á tímaflakki " fyrir strengjakvartett og sögumann. Tónlistin er eftir Steingrím Þórhallsson við sögu Pamelu De Sensi. Í verkinu eru strengjahljóðfærin kynnt á skemmtilegan og leikandi hátt en strengjakvartett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, sem voru vinningshafar Nótunnar 2012 sjá um tónlistarflutning. Að auki koma fram dansarar frá Listdansskóla Íslands og leikararnir Kolbrún Anna Björnsdóttir og Sigurþór Heimisson. Frá klukkan 12:30 verður fjör í anddyrinu og einnig tveir andlitsmálarar sem bjóða upp á ókeypis andlitsmálun.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 18.03.12 - Sunnudagur | 13:00 | Töfrahurð - Klassískt diskótek | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.500 kr. |
| 02.12.12 - Sunnudagur | 13:00 | Töfrahurð - Englajól | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.500 kr. |
| 13.01.13 - Sunnudagur | 13:00 | Töfrahurð - Vínartónleikar | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.500 kr. |
| 10.03.13 - Sunnudagur | 13:00 | Töfrahurð - Strengir á tímaflakki | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.500 kr. |


