- Þú ert hér »
Ólöf Arnalds

Ólöf Arnalds heldur tónleika ásamt Skúla Sverrissyni á Rósenberg fimmtudaginn 2. febrúrar næstkomandi.
Ólöf Arnalds hefur fyrir löngu skipað sér sess með framsæknustu lagahöfundum og flytjendum á Íslandi, frá því að frumraunin Við og við kom út árið 2007 og ekki síður með breiðskífunni Innundir skinni sem leit dagsins ljós í september 2010 á vegum One Little Indian útgáfunnar. Ólöf hefur síðan staðið í ströngu við tónleikahald víðsvegar um heiminn og hefur fengið frábæra dóma í helstu tónlistartímaritum erlendis.
Nýútkomin EP plata Ólafar, Ólöf Sings hefur hlotið afar góð viðbrögð en þetta er fyrsta plata Ólafar þar sem hún syngur alfarið á ensku og spreytir sig á nokkrum ábreiðulögum sem hún hefur áður flutt á tónleikaferðalögum sínum. Hin fjölsótta síða PopMatters telur smáskífuna vera upphaf að nýjum og spennandi kafla í ferli Ólafar og gefur henni einkunnina 8 af 10 en hér heima hefur Ólöf Sings meðal annars fengið fjórar stjörnur hjá gagnrýnenda Morgunblaðsins. Ólöf er í miðju upptökuferli á nýrri breiðskífu, Suddain Elevation sem mun koma út í vor undir stjórn bassaleikarans og tónlistarmannsins Skúla Sverissonar.
Skúli mun spila með Ólöfu á tónleikunum en hann hefur lengi verið náinn samstarfsmaður Ólafar og kom einnig að gerð ‘Við og við’ og ‘Innundir skinni’. Ólöf hefur áður unnið með Skúla að gerð hinnar margrómuðu plötu hans ‘Seríu I’ (2006), sem hlaut m.a. íslensku tónlistarverðlaunin sem besta plata ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar, auk ‘Seríu II’ frá árinu 2010. Þau spiluðu síðast saman á Íslandi á Opnunartónleikum Listahátíðar 2011.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|


