Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Azealia Banks til Íslands!
Tónleikar í Valsheimilinu að Hlíðarenda þann 6. júní nk.
Forsala aðgöngumiða hefst þann 3. febrúar nk. á midi.is

Það er með mikilli gleði sem við kynnum tónleika Azealiu Banks í Valsheimilinu að Hlíðarenda þann 6. júní nk.

Azealia Banks er aðeins 20 ára gömul. Þrátt fyrir það hefur þessi stúlka frá Harlem fengið verðskuldaða athygli. Fyrsta platan hennar kemur út með vorinu en lagið “212” hefur slegið í gegn úti um allan heim. Azealia hóf ferilinn sem dansari og leikari en vakti fyrst athygli sem söngkona með laginu “Seventeen” fyrir 2 árum. Í kjölfarið var gefið út lagið “L8R” og síðan rómuð útgáfa hennar á Interpol laginu “Slow Hands”

Það er því gríðarlegur fengur í komu Azealiu Banks til Íslands. Hún þykir hafa magnaða sviðsframkomu og þeir sem séð hafa myndbönd hennar eru algjörlega heillaðir. Þegar hún kom fram á Koko klúbbnum í London í desember ári ætlaði þakið hreinlega að fara af klúbbnum. Hún er á tónleikaferð um Bretland og er skemmst frá að segja að uppselt er á alla tónleika hennar.

Stjarna er fædd og við Íslendingar erum svo heppnir að vera með þeim fyrstu sem berja hana augum utan heimalandsins og Bretlands. Það má búast við hreint mögnuðum tónleikum í Valsheimilinu að Hlíðarenda í byrjun sumars!

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash