- Þú ert hér »
Grasrótartónleikar

Grasrótartónleikar í Hofi laugardagskvöldið 25. febrúar kl. 21.
Andstætt því sem margur heldur er gróska í grasrótarmenningu Akureyrar. Hér í bæ þrífast tónlistarmenn sem spila ekki með það fyrir augum
að sigra heiminn, heldur þróa með sér sérkenni og frumleika á eigin hátt.
Hljómsveitirnar: Hindurvættir, Gruesome Glory, Buxnaskjónar og Völva ætla að bjóða upp á ferskan tónflutning sem gæðir Hofi nýjum blæ.
Allt frá glaðværu pönki og krefjandi tæknilegu þungarokki yfir í hægari tóna með blúsáhrifum og tilraunablæ. Týndir bræður sem vinna að skapandi tónlistarstarfi og hafa sameiginlegt sjónarmið: Að brjóta upp þann hversdagslega ramma sem svo gjarnan áreitir hlustir okkar í daglegu afþreyingamynstri.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 25.02.12 - Laugardagur | 21:00 | Grasrótartónleikar - | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 1.000 kr. |


