Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

800 Bar kynna með stolti..
..einn uppáhalds plötusnúð Íslendinga..

Micha Moor

Þýski ofur plötusnúðurinn Micha Moor mætir á 800 Bar í fyrsta sinn  föstudaginn 9. mars þar sem hann ætlar að sprengja húsið með flottustu  danstónlist sem  völ er á. Síðustu ár hefur Micha komið nokkrum sinnum til Íslands og  alltaf spilað fyrir troðfullu húsi. Það skiptir ekki máli hvert hann  mætir, NASA, SJALLINN, BROADWAY, alltaf troðfullt hús og stemningin  ótrúleg.

Micha Moor sló fyrst í gegn með laginu sínu "Space", lag sem var spilað  af Tiesto, David Guetta, Armand Van Helden, Moby og mörgum öðrum stórum  nöfnum. Lagið hans "Learn to fly" ættu flestir að kannast við, lagið var  vinsælasta lagið á Íslandi sumarið 2010 og í mörgum öðrum löndum. Í  nóvember í fyrra gaf hann út lagið "Love is chemical" með sama söngvara,  John Anselm og er það hans nýjasti singull. Þess á milli hefur hann  gefið út ótrúlega gott efni, lög eins og "Break my world", "Lifting it  higher" og "Keep on rising" sem var eitt heitasta lagið á Íslandi  síðasta sumar.

Það er því óhætt að segja að stuðið verður á 800 Bar, Selfossi  föstudaginn 9. mars.

18 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
09.03.12 - Föstudagur 23:59 Micha Moor - 800 Bar (Selfossi) 800 bar 2.200 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash