Do Re Mi

Hinir árlegu þematónleikar verða haldnir í Salnum í Kópavogi laugardaginn 24. Mars kl. 13:00. Þema tónleikanna er " The Beatles og Do Re Mi ". Öll atriði tónleikanna eru eftir félagana í The Beatles og eru eingöngu flutt í samspili af nemendum Tónskólans Do Re Mi. Útsetningar laganna 16 eru fjölbreyttar og margar gerðar af kennurum skólans. Undirbúningur tónleikanna hefur staðið síðan í haust og er efnisskráin mjög fjölbreytt og skemmtileg. Má nefna að atriðin spanna frá tveimur flyglum, píano tríó upp í stóra gítarsveit sveitar sem leikur á Marimbur frá Afríku. Til gamans má geta að í ár eru liðin 50 ár frá því að Íslandsvinurinn Ringo Starr gekk til liðs við Bítlana. Tónlistin er órafmögnuð og taka yfir 90 nemendur skólans þátt í tónleikunum.
Að þessu sinni var tekin sú ákvörðun í samráði við foreldrafélagið, að selja inn á tónleikana fyrir kostnaði. Miðaverð verður kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn yngri en 14 ára. Miðasala fer fram á salurinn.is og midi.is. Þeir sem vilja kaupa afsláttarmiða (kr. 500) verða að gera það gegnum miðasölu salarins í síma 5-700-400
Athugið að sæti eru númeruð.
Allir nemendur, foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru hvattir til að mæta og njóta skemmtilegrar tónlistar við bestu aðstæður. Miðasala hefst mánudaginn 28. febrúar og stendur til 5. mars.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.03.12 - Laugardagur | 13:00 | Do Re Mi - og The Beatles | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.000 kr. |
| 24.03.12 - Laugardagur | 14:30 | Do Re Mi - og The Beatles | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 1.000 kr. |


