Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Nú fer hver að verða síðastur að upplifa Nasa í allri sinni dýrð og gleyma sér á stærsta dansgólfi Reykjavíkur.

Flottasta poppstjarna landsins, Páll Óskar, verður auðvitað gordjöss eins og undanfarin ár á uppáhalds tónleikastaðnum sínum, Nasa við Austurvöll.  Hann þeytir skífum af snilld alla nóttina, spilar öll bestu partílög veraldar og syngur svo öll sín bestu lög með öllu glingrinu, blöðrunum og konfetti bombunum þegar leikar standa sem hæst. Gerið ráð fyrir að hann taki lög eins og Betra líf, Allt fyrir ástina, International, Minn hinsti dans, Stanslaust stuð, Ljúfa líf, Ég er eins og ég er, La dolce vita, Megi það byrja með mér, Þú komst við hjartað í mér, Söngur um lífið og Það geta ekki allir verið gordjöss.  Sérstakir gestir Palla þetta kvöld verða heitustu strákarnir í bransanum í dag, Blár Ópal, sem eru að gera allt vitlaust með laginu „Stattu upp“.  Páll Óskar og Blár Ópal er blanda sem mun sprengja þakið af húsinu.

PS.  Munið myndavélarnar. Miðaverð kr. 1500.- í forsölu á midi.is

Nasa – þar sem allir eru gordjöss.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
17.03.12 - Laugardagur 23:59 Páll Óskar og Blár Ópal - Tónleikar Nasa Páll Óskar ehf 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash