- Þú ert hér »
The Number of the Beast

Hin sögufræga hljómsveit Iron Maiden hefur verið starfandi í áratugi við miklar vinsældir. Það var því bara tímaspursmál þangað til að alvöru Iron Maiden tribute hljómsveit yrði stofnuð og nú hefur það orðið að veruleika.
Síðla hausts 2011 ákváðu strengjaleikarar MaidenIced að draga sig aftur saman til að halda upp á 30 ára útgáfuafmæli plötunnar The Number of the Beast sem kom út árið 1982. Gunnar trommari og Dagur söngvari upprunalegu MaidenIced, gáfu ekki kost á sér vegna annarra verkefna svo úr varð að finna menn í þeirra stað. Trommari fannst fljótlega í Kristjáni B(reyti) Heiðarssyni og fljótlega fóru menn að huga að söngvara til að fylla í skó Dags og var ákveðið að taka 4 menn inn í hópinn til að skila sem allra best þessum langa lagalista (rúmlega 2 tímar í flutningi)
MaidenIced Skipa:
Kristján B. Heiðars. – trommur (Changer, Dark Harvest, Orion ofl.)
Reynir Baldursson – gítar (Yukatan, Perfect Disorder)
Sigurður Waage – gítar (Perfect Disorder)
Árni Þráinsson – bassi (Silent Rivers)
Stefán Jakobsson – söngur (Dimma ofl)
Ragnar Ólafsson - söngur (Ask the Slave, Árstíðir)
Matti Matt - söngur (Papar, Dúndurfréttir ofl)
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.04.12 - Laugardagur | 22:00 | The Number of the Beast - 30 ára útgáfuafmælistónleikar | Gamli Gaukurinn | MaidenIced | 2.000 kr. |

