- Þú ert hér »
Vortónleikar Karlakórs Kópavogs

Á 10 ára afmælisári Karlakórs Kópavogs ákvað kórinn að blása til sóknar og efla og bæta kórinn. Á þessum vetri hefur kórinn rúmlega tvöfaldað stærð sína og farið í stranga söngþjálfun í Söngskólanum í Reykjavík.
Kórinn skipar nú 45 söngmenn undir öruggri stjórn Garðars Cortess óperusöngvara.
Kórinn hefur lítið komið fram í vetur, en er nú tilbúinn í vortónleika.
Á dagskrá verða m.a. rússnesk þjóðlög, norsk karlakórslög og íslenskar söngperlur.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 26.04.12 - Fimmtudagur | 20:30 | Vortónleikar Karlakórs Kópavogs - í Salnum | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.000 kr. |
| 29.04.12 - Sunnudagur | 16:00 | Vortónleikar Karlakórs Kópavogs - í Salnum | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.000 kr. |

