- Þú ert hér »
Poppkórinn Vocal Project

Poppkórinn Vocal Project heldur árlega vortónleika sína að þessu sinni í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 31. maí klukkan 20:00.
Vocal project flytur létta og skemmtilega en þó ákaflega metnaðarfulla söngdagskrá sem samanstendur fyrst og fremst af vinsælli popp og rokk tónlist en kórinn spreytir sig einnig á gömlum íslenskum dægurperlum og jafnvel þjóðlögum.
Ólíkt mörgum öðrum kórum er eini fastráðni undirleikarinn trommuleikarinn Þorbergur Ólafsson en auk hans spila á tónleikunum Daníel Sigurðsson gítarleikari sem einnig er meðlimur kórsins, Þórir Úlfarsson píanóleikari og Ingólfur Magnússon bassaleikari.
Stjórnandi Vocal project er Matthías V. Baldursson.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 31.05.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Poppkórinn Vocal Project - UPPSELT | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 2.500 kr. |

