- Þú ert hér »
Valgeir Guðjónsson og gestir

Valgeir Guðjónsson og gestir
Spilaðu lag fyrir mig!
Valgeir Guðjónson ásamt góðum gestum og hljómsveit eru væntanleg í Hof miðvikudagskvöldið 16. maí kl. 20.
Valgeir Guðjónsson er án efa einhver afkastamesti laga- og textahöfundur í sögu dægurtónlistar á Íslandi. Eftir hann liggja ófáar perlurnar, sem eru flestum landsmönnum kunnar og hjartfólgnar og hafa fylgt þeim í gegnum tíðina.
Valgeir hefur starfað með kunnum sveitum eins og Stuðmönnum, Spilverki þjóðanna o.fl. ásamt því að eiga farsælan sólóferil. Öll þekktustu lög Valgeirs munu hljóma í Hofi þetta kvöld ásamt óborganlegum frásögnum úr lífi þessa ástsæla tónlistarmanns með fulltingi hljómsveitar og vina bæði úr Stuðmönnum og Spilverkinu.
Sérstakir gestir verða:
Diddú - Ragnhildur Gísladóttir - Jakob Frímann Magnússon
Hljómsveitina skipa valinkunnir tónlistar- og gleðimenn:
Ásgeir Óskarsson trommur - Tómas Tómasson bassi - Jón Ólafsson hljómborð og söngur - Stefán Már Magnússon gítarar og raddir - Eyjólfur Kristjánsson gítar söngur og raddir
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.05.12 - Miðvikudagur | 20:00 | Valgeir Guðjónsson og gestir - Spilaðu lag fyrir mig! | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 5.900 kr. |


