Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Valgeir Guðjónsson og gestir
Spilaðu lag fyrir mig!

Valgeir Guðjónson ásamt góðum gestum og hljómsveit eru væntanleg í Hof miðvikudagskvöldið 16. maí kl. 20.
Valgeir Guðjónsson er án efa einhver afkastamesti  laga- og textahöfundur í sögu dægurtónlistar á Íslandi. Eftir hann liggja ófáar perlurnar, sem eru flestum landsmönnum kunnar og  hjartfólgnar og hafa fylgt þeim í gegnum tíðina.

Valgeir hefur starfað með kunnum sveitum eins og Stuðmönnum, Spilverki þjóðanna o.fl. ásamt því að eiga farsælan sólóferil. Öll þekktustu lög Valgeirs munu hljóma í Hofi þetta kvöld ásamt óborganlegum frásögnum úr lífi þessa ástsæla tónlistarmanns með fulltingi hljómsveitar og vina bæði úr Stuðmönnum og Spilverkinu.

Sérstakir gestir verða:
Diddú - Ragnhildur Gísladóttir - Jakob Frímann Magnússon

Hljómsveitina skipa valinkunnir tónlistar- og gleðimenn:
Ásgeir Óskarsson trommur - Tómas Tómasson bassi - Jón Ólafsson hljómborð og söngur - Stefán Már Magnússon gítarar og raddir - Eyjólfur Kristjánsson gítar söngur og raddir

 

Vinsamlegast athugið að forsöluverð birtist sjálfkrafa í þriðja skrefi kaupaferlisins.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
16.05.12 - Miðvikudagur 20:00 Valgeir Guðjónsson og gestir - Spilaðu lag fyrir mig! Hof (Akureyri) Miðasala Hofs 5.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash