Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Gleðihljómsveitin FM Belfast ætlar að kveðja veturinn en umfram allt að fagna komu sumarsins með tónleikum á NASA, ásamt hljómsveitinni Úlfur Úlfur, miðvikudagskvöldið 18. apríl.

Um er ræða fyrstu almennu tónleika FM Belfast á Íslandi síðan í september á síðasta ári en jafnframt þeirra síðustu í langan tíma, enda sveitin á leið í strangt sumartónleikaferðalag og loks í barneignafrí. Ennfremur verða þetta væntanlega síðustu tónleikar FM Belfast á NASA en gert er ráð fyrir að staðurinn loki síðar á árinu. FM Belfast á ófáar unaðslegar minningar frá þessum frábæra tónleikastað og því er það ekkert annað en skylda sveitarinnar að kveðja NASA með stæl.

FM Belfast til halds og trausts á tónleikum verða hip-hop stuðsveinarnir í Úlfur Úlfur.

Veislan hefst kl. 23:00 á síðasta vetrardegi og stendur fram að sólarupprás sumardagsins fyrsta.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
18.04.12 - Miðvikudagur 23:00 FM Belfast ásamt Úlfur Úlfur - Tónleikar Nasa Faxaflói ehf 2.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash