Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Trommusnillingurinn Steve Gadd í Austurbæ!

Hljóðfærahúsið - Tónabúðin kynna í samstarfi við Yamaha, Zildjian og Remo: Trommusnillinginn Steve Gadd, einn af eftirsóttustu trommuleikurum í heimi - Austurbæ þann 19.maí kl. 16:00

Steve Gadd verður með "clinic" þar sem hann spjallar, leikur á trommur og miðlar af reynslu sinni. Steve Gadd er lifandi goðsögn á meðal tónlistarmanna. Hann hefur leikið með stórstjörnum á borð við Eric Clapton, Paul Simon og James Taylor, en hann kemur einmitt fram  á tónleikum með þeim síðastnefnda í Hörpu 18.maí.

Þetta er gríðalegur fengur fyrir íslenska tónlistarmenn og nánast skyldumæting fyrir alla trommuleikara. Hann hefur spilað með mörgum þekktum tónlistarmönnum til viðbótar þeim sem taldir eru hér að ofan s.s. Chick Corea, Sting, B.B. King, Steely Dan, Paul McCartney, Weather Report, Al Jarreau, Chet Baker, Kate Bush o.fl.

Sannarlega tækifæri sem tónlistarmenn ættu ekki að missa af.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
19.05.12 - Laugardagur 16:00 Steve Gadd - Trommusnillingur Austurbær Austurbær 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class