Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Jazz og blúshátíð Kópavogs 2012
Laugardagurinn 2. Júní kl 20:00 í Salnum

Það eru fordæmalausir tónleikar í Salnum 2. Júní n.k. Þekktir Kópavogsbúar eru aðalgestir á tónleikunum. Þeir sem koma fram eru margir hverjir þekktir fyrir allt annað en jazz og blús. Má þar nefna Valla í Fræbbblunum en sú goðsagnakennda hljómsveit gerði einmitt út frá Kópavogi á síðustu öld. Sigurður K. Sigurðsson er blússöngvari af guðs náð en hann söng með mörgum af vinsælustu hljómsveitum áttunda áratugarins eins og Tívolí og Eik. Siggi var líka söngvari á hinni eftirminnilegu hljómplötu Íslensk Kjötsúpa og var oft kallaður Súpi af gárungunum. Óttar Felix er stofnandi einnar vinsælustu hljómsveitar Íslandssögunnar, Pops. Óttar lék þar á gítar og söng alla helstu blús-slagara síðustu aldar. Sunna Gunnlaugs hefur leikið á píanó frá því hún man eftir sér og hellti sér yfir í jazzinn þegar hún var unglingur. Hljómsveitin sem leikur undir hjá þessum þekktu Kópavogsbúum, núverandi og fyrrverandi, er skipuð frambærilegustu og best þjálfuðustu mönnum sem völ er á til að fást við verkefni eins og þetta.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
02.06.12 - Laugardagur 20:00 Jazz og blúshátíð 2012 - Í Kópavogi Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class