Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Bræðslan 2012
Mugison (ISF)
Valgeir Guðjónsson (SEY)
Fjallabræður (VFI)
Contalgen funural (SAU)

Tónlistarveislan Bræðslan á Borgarfirði eystri fer fram í áttunda skiptið í sumar, helgina 26. - 29. júlí.
Bræðslan hefur í gegnum árin skipað sér sess sem ómissandi hlekkur í tónlistarlífi landans. Tónleikarnir fara fram að kvöldi 28. júlí í gamalli síldarbræðslu sem heimamenn breyta í tónleikahöll einu sinni á ári. Skipuleggjendur hafa lagt sig fram við að skapa fjölskylduvæna stemningu og er öll þjónusta og aðstaða á Borgarfirði til fyrirmyndar.

Í gegnum tíðina hafa margir framúrskarandi listamenn komið fram á Bræðslunni. Emiliana Torrini, Damien Rice, Eivör, Belle & Sebastian, Magni, Fanfarlo, Þursaflokkurinn, Jónas og Ritvélar framtíðarinnar,  Of Monsters and Men og Megas og Senuþjófarnir eru öll í þeim hópi svo fáein séu nefnd.

Í ár verður sett met í fjölda listamanna sem koma fram á Bræðslunni. Þeir eru: Mugison, hið skeggjaða óskabarn þjóðarinnar ásamt hljómsveit. Söngvaskáld þjóðarinnar, Valgeir Guðjónsson, stígur á stokk með gítarinn. Contalgen Funeral frá Sauðárkróki mætir með sína stórskemmtilegu blöndu af bluegrass reggíi og síðast en alls ekki síst ætla Fjallabræður að heiðra Bræðsluna með nærveru sinni og tónum.

Forsala á Bræðsluna hefst fimmtudaginn 10. maí á midi.is og er vert að taka fram að síðustu ár hefur selst upp á Bræðsluna í forsölu enda aðeins 800 aðgöngumiðar í boði.

Bræðslan er styrkt af Menningarráði Austurlands auk þess sem Flugfélag Íslands og Flytjandi eru aðal máttarstólpar Bræðslunnar ásamt Rás 2.

Korthafar Kortsins, frá Arion banka, fá 25% afslátt sem reiknast sjálfkrafa í 3. skrefi miðakaupa, áður en til greiðslu kemur. Ath að takmarkað magn miða er á afslætti.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
28.07.12 - Laugardagur 19:30 Bræðslan 2012 - Tónleikar - UPPSELT Bræðslan (Borgarfjörður Eystri) Magnaðir ehf 5.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash