Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2012-Undir jökli verður haldin helgina 29. júní - 1. júlí næstkomandi á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram, sem fer ört vaxandi með hverju árinu. Í ár verða yfir 30 íslenskir tónlistarmenn sem koma fram auk þess koma fram tveir erlendir tónlistarmenn.

Dagskráin verður með því móti að á föstudagskvöldinu verða tónleikar í félagsheimilinu Röst og byrja þeir kl. 19:30. Á laugardeginum hefst dagskráin utandyra með lifandi flutningi og plötusnúðum sem standa frá kl. 13 - 19 og verður dagskráin svo færð innanhús í félagsheimilið Röst kl. 19:30 og mun standa fram á nótt.

Í ár verða tvö erlend nöfn sem munu koma fram á Undir Jökli, en það eru engir nýgræðingar á þessu sviði , það eru tónlistarmennirnir Mixmaster Morris frá Bretlandi og Kaido Kirikmäe frá Eistlandi, ásamt þeim verða helstu íslensku raftónlistarmenn landsins en það eru m.a þeir :
?Bix, Tonik, Futurergrapher, Stereo Hypnosis, Inferno 5, Jafet Melge, Reptilicus, Yagya, Ruxpin, Krummi, Samaris, Skurken, Jónas Sen, Ahma, Sigtryggur Berg, Trouble, La La Alaska, Prince Valium, ThizOne, Steve Sampling, Tanya&Marlon, Quadruplos, Captain Fufanu, Arnljótur, Orang Volante, Hamlette Hok, Dj AnDre, Dj Árni Vector og Dj Kári.

Hátíðin fékk m.a úthlutað úr menningarsjóði Kraums í ár og var einnig tilnefnd til menningarverðlauna Dv, svo að ljóst er að það stefnir í stærstu og flottustu Extreme Chill - Undir Jökli raftónlistarhátíðinna til þessa.

Aðeins 350 armbönd verða í boði í ár og hvetjum við því fólk til að tryggja sér armband á hátíðinna tímanlega, í fyrra seldist m.a upp og komust færri að en vildu.

Á svæðinu er ný uppgert kósý tjaldsvæði með salernis og sturtu aðstöðu. Hellissandur er lítill bær sem er yst á norðanverðu Snæfellsnesi. Útsýnið til Snæfellsjökuls annarsvegar og síðan suðurhluta Vestfjarða er einstakt.

Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafrænt landslag

Hægt verður að nálgast armböndin í verslunum Brim Laugavegi og Kringlunni og Midi.is, Fiskislóð 31 frá og með 15. maí

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
29.06.12 - Föstudagur 19:30 Extreme Chill Festival 2012 - Undir Jökli 29. júní - 1. júlí 2012 Félagsheimilið Röst (Hellissandur) Extreme Chill 6.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class