- Þú ert hér »
Reykjavík LIVE

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Reykjavík LIVE er fyrsta tónlistarhátíð sumarsins sem spannar fimm daga. Yfir 50 lifandi atriði ásamt sérkjörum á mat og drykk ásamt fríðindum. Hátíðin er haldin á Gamla Gauknum, Glaumbar, Prikinu & Frú Berglaugu.
Lifandi og fjölbreytt dagskrá er í boði alla daga frá klukkan sex til lokunnar. Á matseðlinum er Rokk í léttari og þyngri kantinum. Rapp, Popp, Raf & Dans tónlist, Dub & Reggae, Blús, Progg, Einyrkja & Þjóðlagatónlist ásamt súper flottum plötusnúðum.
Valdimar – Ensími – Retro Stefson - Brain Police – Bloodgroup - Ojba Rasta - Legend – Kimono – Emmsjé Gauti – Úlfur Úlfur munu koma fram ásamt fjölda af öðrum listamönnum úr tónlistarflóru landsins. Erlendir gestir munu einnig stíga á stokk.
Reykjavík LIVE armband tryggir þér aðgang að fríðindum alla hátíðina
25% afsláttur af matseðlum Priksins, Frú Berglaugu & Rokkinn hamborgaratrukks.
50% afsláttur af Reykjavík Live matseðli á Prikinu.
50% afsláttur af Reykjavík Live matseðli á Frú Berglaugu.
Grolsch stór 650kr
Grolsch lítill 450kr
Oak í kók 700kr
Bíómyndin Svartur á leik sýnd
Happy Hour á hverjum degi.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.05.12 - Miðvikudagur | 18:00 | Reykjavík LIVE - 16. - 20. maí 2012 | Gaukurinn, Glaumbar, Prikið, Frú Berglaug | Gamli Gaukurinn | 4.990 kr. |

