- Þú ert hér »
Gogoyoko Wireless

Íslensk-alþjóðlega tónlistarveitan gogoyoko.com hefur í tæpt ár staðið fyrir hinni vel heppnuðu tónleikaröð "gogoyoko wireless". Viðtökurnar hafa verið framar vonum og hafa tónlistarunnendur tekið röðinni fagnandi og lofað náið andrúmsloftið sem skapast þegar þeirra uppáhalds tónlistarfólk treður upp með óhefðbundnu sniði. Að venju eru tónleikarnir teknir upp, hljóð og mynd, og munu verða gefnir út síðar.
Á þessari níundu útgáfu af gogoyoko wireless verður það Sin Fang sem kemur fram. Sin Fang er listamannsnafn Sindra Más Sigfússonar, sem einnig gerir út hljómsveitina Seabear. Hefur Sin Fang gefið út tvær breiðskífur, Summer Echoes árið 2011 og Clangour árið 2009, en báðar plöturnar komu út hjá gæðaútgáfunni Morr Music í Berlín og nutu almennrar hylli á alþjóðlegum mörkuðum. Að auki hefur tónlist Sindra hljómað í vinsælum sjónvarpsþáttum vestanhafs eins og Gossip Girl og Gray’s Anatomy. Með Sindra leikur einnig mikið afreksfólk á sviði tónlistar, eða Sóley Stefánsdóttir (hljómborð og söngur), Róbert Reynisson (gítar), Arnljótur Sigurðsson (bassi) og Magnús Trygvason Eliassen (trommur).
Þann 25. Maí nk. Kemur út EP-platan Half Dreams með Sin Fang, þar sem við kveður nýjan tón. Skífan er öllu sumarlegri og jafnvel léttari en hans fyrri verk og því verður spennandi að heyra þetta efni á tónleikum. Sin Fang heldur svo á Evróputúr með Sóley í seinnihluta maí.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 11.05.12 - Föstudagur | 22:00 | Gogoyoko Wireless 5 - Sin Fang | Kex Hostel | Gogoyoko | 1.500 kr. |


