- Þú ert hér »
Grannmetis- og átvaxtaveisla Ljótakórs

Grannmetis- og átvaxtaveisla Ljótakórs
Tjarnarbíó miðvikudag 16. maí kl. 21:00
Fyrstu opinberu tónleikar Ljótakórs verða næstkomandi miðvikudag þegar kórinn býður til dagskrár sem byggist á ljóðum Þórarins Eldjárns úr bók hans “Grannmeti og átvextir”. Tónlistin er eftir Hauk Tómasson, en lögin útsetti hann sérstaklega fyrir kórinn. Óhætt er að lofa skemmtilegri kvöldstund með óvæntum uppákomum þar sem Ljótikór leggur sig fram um að fara nýstárlegar leiðir í tónlistarflutningi.
Ljótikór rekur upphaf sitt til haustsins 2009. Hann var stofnaður með það markmið í huga að færa út hefðbundnar hugmyndir um kórstarf; að vinna á skapandi og lýðræðislegan hátt, bæði með efnisval, útsetningar og flutning þannig að upplifun áhorfanda yrði ekki eingöngu að hlusta á vel flutta tónlist, heldur kæmu líka til sjónrænir þættir, leikrænir og jafnvel höfði flutningurinn til fleiri skynfæra. Nafnið Ljótikór festist við hópinn og í honum starfa að meðaltali um 30 manns úr ýmsum starfsgreinum.
Þótt þetta séu fyrstu opinberu tónleikar Ljótakórs, þá hefur hann komið fram við ýmis tilefni, m.a. til heiðurs verndara kórsins, frú Vigdísi Finnbogadóttur, í Iðnó. Einnig hefur kórinn troðið upp á Hlemmi og BSÍ, við opnun Hörpu, á Kramhúshátíð í Íslensku Óperunni, við afhendingu Fjöruverðlauna í Iðnó, á ráðstefnunni “Alvara málsins – bókaþjóð í ólestri” í Norræna húsinu, lista- og menningarhátíð Staðaruppbótarinnar og á söngskemmtun Söngfjelagsins í Iðnó, svo eitthvað sé nefnt.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.05.12 - Miðvikudagur | 21:00 | Grannmetis- og átvaxtaveisla - Ljótakórs | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 1.500 kr. |


