Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Sigur Rós á Iceland Airwaves

Skipuleggjendum Iceland Airwaves er það mikill heiður að tilkynna endurkomu Sigur Rósar á hátíðina með nýja plötu, Valtara, í farteskinu.  Það eru liðin heil ellefu ár frá því að Sigur Rós kom síðast fram á Iceland Airwaves.  Það er því ekki seinna vænna en að bjóða þessa frábæru hljómsveit velkomna aftur en tónleikarnir fara fram sunnudaginn 4. nóvember í Nýju Laugardalshöllinni, á síðasta degi Iceland Airwaves hátíðarinnar.

Sigur Rós heldur tónleika víða um heim á næstu mánuðum og mun á þeim spila efni úr stóru safni sínu ásamt efni af nýju plötunni.  Tónleikarnir á Iceland Airwaves verða fyrstu tónleikar sveitarinnar á Íslandi í fjögur ár.

Tónleikar Sigur Rósar á Iceland Airwaves eru öllum opnir, þeas ekki er skilyrði að kaupa eða eiga miða á Iceland Airwaves til að upplifa Sigur Rós í Nýju Laugardalshöllinni.
Tryggðu þér miða núna!

Vinsamlegast athugið að miðahafar Iceland Airwaves verða að kaupa miða á Sigur Rós líka. Engin miði, engin aðgangur.

Sigur Rós á Iceland Airwaves
-Sérstakt verð fyrir 13-16 ára.

Nemendum á aldrinum 13-16 ára frá haustönn 2012 (árgangar fæddir 1997-1999), gefst tækifæri á að komast á tónleika Sigur Rósar á Iceland Airwaves á miðaverði sem þeir ráða við eða 1.000.- kr. Þetta fyrirkomulag var einnig á tónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll í lok árs 2008 og mæltist þá vel fyrir hjá nemendunum og foreldrum þeirra. Takmarkað magn miða er í boði fyrir þennan aldurshóp og verða þeir seldir eftir „fyrstur kemur, fyrstur fær“ reglunni. Hægt er að kaupa miða á midi.is og útsölustöðum mida.is Nauðsynlegt er fyrir þessa árganga að hafa skilríki með sér á tónleikana. Miðað er við fæðingarár.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
04.11.12 - Sunnudagur 19:00 Sigur Rós - Iceland Airwaves Nýja Laugardalshöllin sr / ks 5.900 kr.
04.11.12 - Sunnudagur 19:00 Sigur Rós - 13 - 16 ára Iceland Airwaves Nýja Laugardalshöllin sr / ks 1.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash