- Þú ert hér »
Bubbi Morthens

Bubbi Morthens - Þorpið
Þann 26. apríl s.l gaf Bubbi út nýja sólóplötu. Platan heitir Þorpið og er 24. breiðskífa Bubba með frumsömdu efni. Að margra áliti er þessi plata afturhvarf Bubba í tónlistinni og leitar hann í ræturnar. Gítarinn í forgrunni og kántríáhrifin aldrei langt undan.
Á Þorpinu er að finna 14 ný lög frá Bubba. Hann heldur áfram samstarfi sínu við Sólskuggana en þeir áttu einmitt heiðurinn af síðustu plötu Bubba “Ég trúi á þig” sem náði miklum vinsældum og er söluhæsta plata Bubba síðan 1000 kossa nótt sem kom út árið 2003. Heimildarmynd Óskin fylgir á DVD og er þar fylgst með upptökuferli plötunnar.
Titillag Þorpsins hefur þegar náð miklum vinsældum og eftir aðeins viku er platan sú söluhæsta á landinu og má búast við að hún verði þar eitthvað inn í sumarið. Nýtt lag af plötunni, Fjórtán öskur á þykkt, fer svo í spilun á næstu dögum ásamt því að myndband við lagið verður frumsýnt.
Útgáfutónleikar
Í tilefni plötunnar verða haldnir tvennir útgáfutónleikar í júní. Með í för verða allir þeir sem komu að tónlistinni og er það stór hópur. Þeir staðir sem hafa orðið fyrir valinu eru:
20. júní, Austubær, Reykjavík (Kaupa miða)
22. júní, Hof, Akureyri (kaupa miða)
Hljómsveitin og aðstoðarmenn
Bubbi heldur áfram gæfuríku samstarfi við Sólskuggana en þeir tóku einmitt þátt í gerð síðustu plötu, Ég trúi á þig, sem kom út í fyrra og gekk gríðarlega vel. Platan seldist í yfir 5.000 eintökum og komst því í gullsölu.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.06.12 - Föstudagur | 20:30 | Bubbi Morthens - Útgáfutónleikar - Þorpið | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.900 kr. |


