Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Bubbi Morthens - Þorpið

Þann 26. apríl s.l  gaf Bubbi út nýja sólóplötu.  Platan heitir Þorpið og er 24. breiðskífa Bubba með frumsömdu efni.  Að margra áliti er þessi plata afturhvarf Bubba í tónlistinni og leitar hann í ræturnar.  Gítarinn í forgrunni og kántríáhrifin aldrei langt undan.

Á Þorpinu er að finna 14 ný lög frá Bubba.  Hann heldur áfram samstarfi sínu við Sólskuggana en þeir áttu einmitt heiðurinn af síðustu plötu Bubba “Ég trúi á þig” sem náði miklum vinsældum og er söluhæsta plata Bubba síðan 1000 kossa nótt sem kom út árið 2003.  Heimildarmynd Óskin fylgir á DVD og er þar fylgst með upptökuferli plötunnar.

Titillag Þorpsins hefur þegar náð miklum vinsældum  og eftir aðeins viku er platan sú söluhæsta á landinu og má búast við að hún verði þar eitthvað inn í sumarið.  Nýtt lag af plötunni, Fjórtán öskur á þykkt,  fer svo í  spilun á næstu dögum ásamt því að myndband við lagið verður frumsýnt.

Útgáfutónleikar
Í tilefni plötunnar verða haldnir tvennir útgáfutónleikar í júní. Með í för verða allir þeir sem komu að tónlistinni og er það stór hópur. Þeir staðir sem hafa orðið fyrir valinu eru:
20. júní, Austubær, Reykjavík (Kaupa miða)
22. júní, Hof, Akureyri (kaupa miða)

Hljómsveitin og aðstoðarmenn
Bubbi heldur áfram gæfuríku samstarfi við Sólskuggana en þeir tóku einmitt þátt í gerð síðustu plötu, Ég trúi á þig, sem kom út í fyrra og gekk gríðarlega vel.  Platan seldist í  yfir 5.000 eintökum og komst því í gullsölu.

Korthafar Kortsins, frá Arion banka, fá 30% afslátt sem reiknast sjálfkrafa í 3. skrefi miðakaupa ,áður en til greiðslu kemur . Ath að takmarkað magn miða er á afslætti.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
22.06.12 - Föstudagur 20:30 Bubbi Morthens - Útgáfutónleikar - Þorpið Hof (Akureyri) Miðasala Hofs 4.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class