- Þú ert hér »
The Tickling Death Machine

Dansflokkurinn Shalala og hljómsveitirnar Lazyblood og Reykjavík! munu sýna jaðarsöngleikinn Tickling Death Machine í Iðnó föstudaginn 8. júní kl. 21:00. Um er að ræða Íslandsfrumsýningu en áður hefur þessi rómaði jaðarsöngleikur verið sýndur á Listahátíðum í Brussel og Orléans í Frakklandi.
Hvað er TICKLING DEATH MACHINE?
Tickling Death Machine er samstarfsverkefni tveggja hljómsveita, dansara og fleira góðs fólks. Það er ekki tónleikar, það er ekki dansverk og það er ekki leikhús en á sama tíma er það allt þetta. Það er kannski eins konar andaglas þar sem áhorfendur hverfa á brott með bros á vör og hlýju í hjarta.
Verkið var frumsýnt á sviðslistahátíðinni KUNSTENFESTIVAL DES ARTS í Brussel vorið 2011 og var sýnt þar fyrir fullu húsi alls fjórum sinnum. Í kjölfarið var verkið bókað á hátíð í Orléans í Frakklandi og í haust verður verkið sýnt á KYOTO EXPERIMENT í Kyoto, Japan.
THE TICKLING DEATH MACHINE
“Skildu sjálfsmyndina eftir við dyrnar og leyfðu okkur að afhausa þig aðeins.”
Við höldum gegnum vélina, við ferðumst, við sleppum taki á fortíðinni og við sökkvum okkur í gleði afhöfðunarinnar, kitlandi tilfinning neðst í maganum færir okkur frelsi frá öllum óttanum, öllum óttanum sem hefur haldið okkur niðri. Endanlegt frelsi, algert frelsi, frelsið er yndislegt, við gerum það sem við viljum, hauslaus og hamingjusöm fljótum við yfir okkur sjálfum og okkur er létt.
Hugurinn er skýr og skynfærin eru í ró
Þegar öllu er á botninn hvolft erum við öll höfuðlausar skepnur sem stjórnast einvörðungu og einungis af ómeðvituðum vöðvakippum og hnykkjum, bylmings-æðaslætti og kaótískum draumhreyfingum, rafmagni í vöðva. Því hristum við af okkur dauðleikadáið og byrjum upp á nýtt, í anda eilífrar endurkomu hins sama og órúbórósar. Öll verðum við það sem við eitt sinn vorum, okkar dýrslega eðli snýr aftur; dýrið hikar ekki, dýrið berst fyrir tilvist sinni með því að lúta syndum forfeðra sinna og endurtaka þær.
Það sem gerist innan vélarinnar og það sem kemur út úr henni á endanum er undir þér komið. Þín er völin og þín er kvölin.
LAZYBLOOD hefur boðið Reykjavík! að kanna með þeim dýpstu lægðir mannssálarinnar með miðilinn ROKK OG RÓL að vopni. Skildu sjálfsmyndina eftir við dyrnar og leyfðu okkur að afhausa þig aðeins.
Við vonum að þú hverfir héðan með bros á vör og hlýju í hjartanum.
Við elskum.
Netsölu er lokið á þessum atburð en miðasala verður við innganginn.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 08.06.12 - Föstudagur | 21:00 | The Tickling Death Machine - | Iðnó | Shalala ehf | 2.490 kr. |


