- Þú ert hér »
Vortónleikar Þrasta 2012

Vortónleikar Þrasta munu fara fram laugardaginn 19. maí og sunnudaginn 20. maí þetta árið. Hinir stórskemmtilegu listamenn Eivör Pálsdóttir, Mugison og KK munu koma til liðs við Þresti og jafnframt mætir dægursveitin úr Hörpu. Það verður engu minna fjör á vortónleikum 2012 en á afmælistónleikunum í Hörpu í febrúar!!
Laugardaginn 19. maí verða tvennir tónleikarnir í Langholtskirkju kl. 16:00 og kl. 20:00.
Sunnudaginn 20. maí verða tónleikarnir í Víðistaðakirkju og hefjast kl.16:00.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 19.05.12 - Laugardagur | 16:00 | Vortónleikar Þrasta 2012 - Eivör, Mugison, KK og dægursveit | Langholtskirkja | Karlakórinn Þrestir | 4.000 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 20:00 | Vortónleikar Þrasta 2012 - Eivör, Mugison, KK og dægursveit | Langholtskirkja | Karlakórinn Þrestir | 4.000 kr. |


