- Þú ert hér »
KK og Maggi Eiríks

KK og Magnús Eiríksson og synir
KK og Magga Eiríks þarf vart að kynna en þeir eru meðal helstu lagasmiða þjóðarinnar og hafa starfað saman í ein sextán ár. Saman hafa þeir gefið út sex geisladiska meðal annars svokallaða ferðalagaplötur og haldið tónleika á flestum stöðum um allt land og í Kína.
Ásamt þeim KK og Magga munu sonur KK, Sölvi Kristjánsson, og sonur Magga, Magnús Örn, koma fram ásamt feðrum sínum í fyrsta sinn allir fjórir saman en Sölvi leikur á bassa og Magnús Örn á trommur.
Kvöldstund sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 07.06.12 - Fimmtudagur | 20:30 | KK og Maggi Eiríks - og synir | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.300 kr. |

