- Þú ert hér »
Retro Stefson og Jón Jónsson

Retro Stefson og Jón Jónsson á Faktorý 9. júní nk.
Ný tónleikaröð – þema kvöldsins: Popp og gleði!
Það er geggjað stuð framundan! Retro Stefson og Jón Jónsson slá upp í hreint magnað kvöld á Faktorý laugardaginn 9. júní nk. Húsið opnar kl. 23:00 og herlegheitin hefjast stundvíslega klukkan 23:59. Forsala er hafin á midi.is og síðan verður selt við hurðina ef eitthvað verður eftir af miðum. Það kostar aðeins 1.500 kr. inn í forsölu og 2.000 kr. við dyrnar!
Retro Stefson er á fullu við upptökur á nýrri plötu sem kemur út á Menningarnótt (18. ágúst) á milli þess sem sveitin ferðast um öll helstu tónlistarfestivölin í Evrópu. Smáskífan Qween er ný kominn út á vinýl ásamt “remixi” Hermigevils á laginu - kjörið að smella sér á eintak og dansa út sumarið!
Slegið verður til veislu í hverjum mánuði á Faktorý þar sem mismunandi listamönnum er boðið að taka þátt. Þema þessa fyrsta kvölds eru dásemdir popptónlistarinnar og endalaus gleði!
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 09.06.12 - Laugardagur | 23:59 | Retro Stefson og Jón Jónsson - Tónleikar | Faktory | Retro Stefson | 1.500 kr. |


