- Þú ert hér »
Jónsmessutónleikar

Söngdúllurnar Svavar Knútur og Kristjana Stefáns koma aftur saman á sínum árlegu Jónsmessutónleikum í Viðey, fimmtudagskvöldið 21. júní nk. og endurvekja hina frábæru stemmningu frá því í fyrra með dásamlegum dúettatónleikum.
Kristjana og Svavar Knútur hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir stórskemmtileg dúettakvöld, þar sem þau láta gamminn geysa og taka saman fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá Nick Cave og Páli Ísólfssyni, auk frumsamdra laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba. Í þetta skiptið verður þó nokkur áhersla lögð á gullaldardúetta og smelli frá níunda áratugnum, með dásamlegum flytjendum á borð við Cindy Lauper, Madonnu, Tinu Turner og Sinéad O'Connor, enda eru þau vinirnir algerar 80's dívur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er mæting á Hafnarbakkann æskileg um sjöleytið. Einnig verður boðið upp á miðnæturtónleika fyrir þá sem eftir því sækjast og hefjast þeir kl. 23. Ef veður leyfir verða tónleikarnir úti, en ef illa viðrar verður flúið inn í Viðeyjarstofu og kósýkvöldsstemmningin verður allsráðandi.
Þeim sem vilja fá sér "Dinner and a show", er bent að mæta í fyrri ferðir með Viðeyjarferjunni, þar sem ekki verður tími til að panta sér mat fyrir tónleikana ef sjöferjan er tekin.
Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður í fyrra og hefur hún hlotið bráðgóðar viðtökur.
Best er að tryggja sér miða í tíma, enda takmarkaður miðafjöldi í boði. Börn eru hjartanlega velkomin með og þarf einungis að panta ferjumiða fyrir þau.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.06.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Jónsmessutónleikar - Svavars og Kristjönu - FULLORÐINSMIÐI | Viðey | Svavar Knútur | 3.000 kr. |
| 21.06.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Jónsmessutónleikar - Svavars og Kristjönu - BARNAMIÐI | Viðey | Svavar Knútur | 600 kr. |
| 21.06.12 - Fimmtudagur | 23:00 | Jónsmessutónleikar - Svavars og Kristjönu - FULLORÐINSMIÐI | Viðey | Svavar Knútur | 3.000 kr. |
| 21.06.12 - Fimmtudagur | 23:00 | Jónsmessutónleikar - Svavars og Kristjönu - BARNAMIÐI | Viðey | Svavar Knútur | 600 kr. |

