Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Múgsefjun útgáfutónleikar
Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 21. júní 2012

Þann 11. júní kom út önnur plata hljómsveitarinnar Múgsefjunar. Af því tilefni verður blásið til útgáfutónleika á sumarsólstöðum í Fríkirkjunni. Tónlist Múgsefjunar hefur þróast í nýjar áttir frá því að seinasta plata þeirra, Skiptar skoðanir, kom út árið 2008. Sú plata hlaut einróma lof gagnrýnenda og var m.a. tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Nýja platan, sem ber sama nafn og sveitin, varð til á þremur viðburðaríkum árum, bæði í lífi þjóðarinnar og lífi hljómsveitarmeðlima. Samfélagsrýni, jákvæðni, bölsýni og veruleikaflótti eru meðal umfjöllunarefna, auk þess sem áður akústísk þjóðlagahljóðmynd hefur nú drekkt í sig sterka liti rafmagnsgítarsins, kirkjuorgels, hljóðgervla og sí meiri slagverks.

Haldið verður upp á útgáfuna með veglegum tónleikum í Fríkirkjunni fimmtudaginn 21. júní kl. 21, þar sem fjöldi hljóðfæraleikara ganga til liðs við sveitina til að fanga hljóm plötunnar. Húsið opnar kl. 20.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
21.06.12 - Fimmtudagur 21:00 Múgsefjun - Útgáfutónleikar Fríkirkjan í Reykjavík Gúngala sf 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class