Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Melchior - útgáfutónleikar syðri í Iðnó

Nú í vor gaf hljómsveitin Melchior út geislaplötuna Matur fyrir tvo.  Tvennir útgáfutónleikar verða haldnir af því tilefni, útgáfutónleikar nyrðri á Þjóðlagahátíð á Siglufirði og útgáfutónleikar syðri í Iðnó.

Á tónleikunum mun sveitin leika öll 14 lögin á plötunni, Ugluna, Spriklandi vor og það allt.  Matur fyrir tvo er tónlistarlegt framhald plötunnar melchior, sem kom út árið 2009.  Kammerpoppið hefur hér verið þróað enn fremur og útkoman er fjölbreytni, ferskur stíll og sterk heild.Þetta verða því svakafínir tónleikar.  

Hljómsveitin Melchior er skipuð þeim Hilmari Oddssyni, Hróðmari I Sigurbjörnssyni og Karli Roth, sem syngja og leika á gítara og hljómborð, Kristínu Jóhannsdóttur söngkonu, Gunnari Hrafnssyni bassaleikara og Kjartani Guðnasyni trommuleikara.  Með þeim í Iðnó verða Margrét Kristjánsdóttir fiðluleikari og Ari Hróðmarsson básunuleikari og e.t.v. fleiri.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
12.07.12 - Fimmtudagur 20:30 Melchior - Útgáfutónleikar syðri Iðnó Iðnó 1.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class