- Þú ert hér »
Reykholtshátíð 2012

Reykholtshátíð 2012
27. - 29. júlí
Föstudagurinn 27. 7. kl. 20:00 - Opnunartónleikar
Dúettar fyrir tvær fiðlur eftir Bartók í flutningi finnska fiðluleikarans Réku Szilvay og Auðar. Vovka Ashkenazy leikur hinar undurfögru og kröftugu Brahms rhapsódíur á píanó. Myndrænt verk Jóns Nordals, Myndir á þili í flutningi Bryndísar og Steinunnar. Glænýjar útsetningar fyrir píanótríó á íslenskum einsöngslögum. Auður, Bryndís Halla og Steinunn flytja. Joseph Ognibene ásamt Auði og Vovka leika hið stórbrotna Brahms horntríó.
Laugardagurinn 28. 7 kl. 15:00 - Söngtónleikar með kammerívafi
Þóru Einarsdóttur, sópran þarf vart að kynna, en hún verður með afar skemmtilega og fjölbreytta dagskrá með kammerívafi þar sem hún mun syngja við meðleik Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur og strengjaleikurum Reykholtshátíðar. Á dagskrá verða verk eftir Beethoven fyrir sópran og píanótríó ásamt rússneskum og frönskum sönglögum. Einnig verða á dagskrá íslensk einsöngslög þ.á.m. glænýjar útsetningar fyrir sópran og píanótríó.
Laugardagurinn 28. 7 kl. 20:00 - Meistaraverk í flutningi Réku, Vovka og Heini
Einn fremsti fiðluleikari Finna, Réka Szilvay ásamt píanóleikaranum Heini Kärkkäinen leika eitt þekktasta verk tónbókmenntanna Kreutzer fiðlusónötuna eftir Beethoven. Réka leikur ásamt Vovka Ashkenazy hina glæsilegu Debussy fiðlusónötu og Heini Kärkkäinen flytur tónlist heimalands síns, píanósónötu Sibeliusar. Auður og Bryndís flytja sjaldheyrt dúó fyrir fiðlu og selló eftir Sibelius, Vatnsdropar og Canon.
Sunnudagurinn 29. 7 kl. 16:00 - Söngtónleikar: Draumar og ævintýri á sumarnótt
Ein glæsilegasta og fjölhæfasta söngkona Finna um þessar mundir Sirkka Lampimäki mun flytja fjölbreytta efnisskrá með sönglögum og óperuaríum eftir Sibelius, Kuula, Grieg, Debussy, Mozart, Strauss ofl. við meðleik Eliisu Suni. Flest verkanna á tónleikunum tengjast ljóðum og ævintýrum. Á fyrri hluta tónleikanna verður ljóðasöngur en seinni hlutinn býður upp á glæsilegar aríur.
Sunnudagurinn 29. 7 kl. 20:00 - Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Glæsilegir lokatónleikar hátíðarinnar þar sem flutt verður Beethoven fiðlusónatan í a-moll op.23 með þeim Réku og Heini. Sónata nr. 3 eftir Ysaÿe í flutningi Helgu Þóru. Sirkka Lampimäki flytur óperuaríu ásamt Eliisu Suni. Réka flytur þrjú undurfögur lög, eftir Sibelius. Flutt verða íslensk einsöngslög í skemmtilegri útsetningu fyrir píanótríó. Vovka Askhenazy píanóleikari ásamt strengjaleikurunum Auði, Helgu Þóru, Bryndísi og Þórunni flytja hinn vinsæla og stórbrotna píanókvintett eftir Brahms.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.07.12 - Föstudagur | 19:30 | Reykholtshátíð 2012 - Hátíðarpassi | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 10.000 kr. |
| 27.07.12 - Föstudagur | 20:00 | Reykholtshátíð 2012 - Opnunartónleikar | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 3.000 kr. |
| 28.07.12 - Laugardagur | 15:00 | Reykholtshátíð 2012 - Söngtónleikar með kammerívafi | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 3.000 kr. |
| 28.07.12 - Laugardagur | 20:00 | Reykholtshátíð 2012 - Meistaraverk í flutningi Réku Vovka og Heini | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 3.000 kr. |
| 29.07.12 - Sunnudagur | 16:00 | Reykholtshátíð 2012 - Söngtónleikar | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 3.000 kr. |
| 29.07.12 - Sunnudagur | 20:00 | Reykholtshátíð 2012 - Lokatónleikar | Reykholtskirkja (Borgarfirði) | Tónstef ehf. | 3.000 kr. |

