- Þú ert hér »
KK – Vegbúinn vinalegi

Af fingrum fram
Jón Ólafsson fær til sín gesti og laðar fram þægilega og létta stemningu eins og honum einum er lagið. Einstakir spjalltónleikar þar sem áhorfendur komast í nálægð við tónlistarmenn sem aldrei fyrr. Af fingrum fram hefur notið sívaxandi vinsælda og var uppselt á alla tónleika raðarinnar síðasta vetur.
27. september kl. 20:30
KK – Vegbúinn vinalegi
Íslendingar elska þennan mann og það gerir Jón líka. Einn okkar albesti söngvari og gítarleikari sem á litríkum ferli hefur fært okkur lög og texta sem láta okkur tæpast ósnortin. Lífshlaup KK er sérdeilis áhugavert og það má slá því föstu að gestgjafinn mun láta sér fátt óviðkomandi í þetta skiptið. Sérstakur gestur verður Þorleifur Guðjónsson, æskufélagi Kristjáns og samstarfsfélagi til margra ára.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.09.12 - Fimmtudagur | 20:30 | KK – Vegbúinn vinalegi - Af fingrum fram með Jóni Ólafs. | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 3.300 kr. |

