Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Af fingrum fram

Jón Ólafsson fær til sín gesti og laðar fram þægilega og létta stemningu eins og honum einum er lagið. Einstakir spjalltónleikar þar sem áhorfendur komast í nálægð við tónlistarmenn sem aldrei fyrr. Af fingrum fram hefur notið sívaxandi vinsælda og var uppselt á alla tónleika raðarinnar síðasta vetur.

6. febrúar kl. 20:30
Eivör Pálsdóttir – Einstök upplifun
Frá því að þessi einstaka listakona kom fyrst til Íslands á unglingsárum til að hefja söngnám hefur samband hennar við Ísland einkennst af gagnkvæmri ást. Persónuleg túlkun og tónsmíðar hafa hrifið okkur og óvíða á hún tryggari áhangendur en einmitt hér norður í ballarhafi. Tónleikar hennar og Jóns fyrir tæpu ári síðan voru stórkostlegir og enginn fór ósnortinn heim. Nú gefst enn fleirum tækifæri til að kynnast manneskjunni á bak við tónlistina.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
06.02.13 - Miðvikudagur 20:30 Eivör Pálsdóttir – Einstök upplifun - Af fingrum fram með Jóni Ólafs. Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash