Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Eitraður kokteill!

Retro Stefson og Muck á Faktorý 5. júlí nk.
Tónleikar númer 2 í röðinni – þema kvöldsins: Sveittur Metall!

Það er geggjað stuð framundan! Retro Stefson og Muck mæta á svæðið og slá í sveitta stemming á Faktorý fimmtudaginn 5. júlí nk. Húsið opnar kl. 21:30 og herlegheitin hefjast stundvíslega klukkan 22:29. Forsala á midi.is og síðan verður selt við hurðina ef eitthvað verður eftir af miðum. Það kostar aðeins 1.500 kr. að skella sér á eitraðasta kokteil tónlistarsumarsins.

Retro Stefson er á fullu við upptökur á nýrri plötu sem kemur út á Menningarnótt (18. ágúst) á milli þess sem sveitin ferðast um öll helstu tónlistarfestivölin í Evrópu. Stefnan er tekin á að slá til veislu í hverjum mánuði þar sem mismunandi listamönnum er boðið að taka þátt. Þema kvölds númer 2 eru unaðssemdir metalsins í bland við brjálað fimmtudagspartý!

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
05.07.12 - Fimmtudagur 22:30 Retro Stefson og Muck - Tónleikar Faktory Retro Stefson 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class