Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Strengjasveitin Skark

Efnisskrá
Strengjasveitin Skark var stofnuð árið 2008 af ungum strengjaleikurum. Meðlimir hennar stunda flestir framhaldsnám í tónlist, ýmist hér heima eða erlendis, en koma árlega saman og leika fjölbreytta dagskrá á tónleikum. Sveitin lék í fyrsta skipti opinberlega á opnunartónleikum Tónlistarhátíðar unga fólksins sumarið 2008 og hefur verið fastur liður á opnunartónleikum hátíðarinnar frá upphafi.

Strengjasveitin Skark hefur frá stofnun komið víða við og hlotið glimrandi dóma fyrir leik sinn, meðal annars fimm stjörnur af gagnrýnanda Morgunblaðsins (RÖP 2009) fyrir tónleika sína á Tónlistarhátíð unga fólksins í ágúst 2009. Þeir tónleikar voru jafnframt valdir bestu klassísku tónleikar ársins að mati gagnrýnenda Morgunblaðsins.

Í mars 2010 kom sveitin saman í Berlín, þar sem hún var meðal annars hluti af innsetningu franska listamannsins Nicolas Dusollier. Tónleikarnir voru haldnir í gamalli sundlaug í borginni og var þetta í fyrsta skipti sem hún var notuð sem tónleikastaður. Vöktu tónleikar sveitarinnar í sundlauginni mikla athygli og var til að mynda fjallað um þá í sumartímariti flugfélagsins Easy Jet sem lesið er af um fjórum milljónun flugfarþega yfir sumarmánuðina.

Stjórnandi strengjasveitarinnar Skark er Bjarni Frímann Bjarnason, sem leikur einnig iðulega á víólu og hljómborðshljóðfæri með sveitinni. Bjarni Frímann stundar nú nám í hljómsveitarstjórn við Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
08.08.12 - Miðvikudagur 20:00 Strengjasveitin Skark - Tónlistarhátíð unga fólksins 2012 Salurinn Salurinn í Kópavogi 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class