Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Gítar og fiðla
Joaquín Páll Palomares og Ögmundur Þór Jóhannesson

Joaquin Páll byrjaði að spila á fiðlu sex ára og lærði heima undir handleiðslu foreldra sinna, Unnar Pálsdóttur og Joaquín Palomares. Næstu fimm árin spilaði hann á mörgum tónleikum og sem einleikari með nokkrum hljómsveitum, bæði á Spáni og Íslandi. Haustið 2002, eftir nokkurra ára hlé, hóf hann nám í Tónlistarskóla Kópavogs og kennari hans var Margrét Kristjánsdóttir. Hann útskrifaðist þaðan vorið 2005 með hæstu einkunn og hóf nám í Listaháskóla Íslands haustið 2005 undir handleiðslu Auður Hafsteinsdóttur. Að loknu diplomaprófi frá LHÍ 2008 lá leiðin til Berlínar  þar sem hann hefur  stundað framhaldsnám við Hochschule für Musik „Hanns Eisler“ undir handleiðslu  Ulf Wallin. Páll hefur sótt masterklassa m.a. hjá Guðnýju Guðmundsdóttur, Roland Vamos, Rachel Burton Pine, Guilles Apap, Pekka Kuusisto og Nikolaj Znaider. Árið 2008 lék Páll fiðlukonsert Sibelíusar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum „Ungra einleikara“. Konsertinn lék hann einnig með Orquesta Sinfónica de Alicante á Spáni sama ár. Páll hefur verið afleysingamaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands, leikið með Orkester Norden og verið konsertmeistari í ýmsum ungmennahljómsveitum.

Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari er fæddur árið 1980 og uppalinn í Kópavogi. Ögmundur lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs vorið 2000 og hélt að því búnu til Barcelona þar sem hann stundaði einkanám í gítarleik við Escola Luthier d'arts musicals um tveggja ára skeið. Vorið 2008 lauk Ögmundur mastersnámi í gítarleik með hæstu einkunn frá Universität Mozarteum í Salzburg. Ögmundur er nú búsettur í Berlín, þar sem hann sinnir kennslu og tónleikahaldi á alþjóðlegum vettvangi. Ögmundur hefur komið fram á fjölda tónleika hér og landi og erlendis. Í ársbyrjun 1999 spilaði hann á vígluhátíð Salarins sem fulltrúi nemenda Tónlistarskóla Kópavogs og sex árum síðar hélt hann debut-tónleika sína í TÍBRÁR tónleikaröð hússins við frábærar undirtektir gagnrýnenda. Að auki hefur hann meðal annars haldið einleikstónleika á Myrkum músíkdögum 2010, Norrænum músíkdögum 2011 og á tónlistarhátíðum í Ísrael, Bandaríkjunum, Frakklandi og Austurríki.  Ögmundi hefur hlotnast fjöldi viðurkenninga og verðlauna, hérlendis sem og á erlendri grundu, fyrir leik sinn. Má þar nefna 2. verðlaun í hinni alþjóðlegu Agustin Barrios gítarkeppni í Lambesc í Suður-Frakklandi árið 2003 (1. verðlaun ekki veitt).

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
10.08.12 - Föstudagur 20:00 Suðrænir dansar - Tónlistarhátíð unga fólksins 2012 Salurinn Salurinn í Kópavogi 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class