- Þú ert hér »
Fiðla og píanó

Fiðla og píanó
Hulda Jónsdóttir og Ástríður Alda Sigurðardóttir
Hulda Jónsdóttir er fædd árið 1991. Hún hóf fiðlunám fjögurra ára gömul hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Síðar nam hún við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guðmundsdóttur. Vorið 2009 lauk Hulda diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands. Frá hausti 2009 hefur hún stundað nám við The Juilliard School í New York þar sem kennari hennar er David Chan. Fyrrum kennarar hennar við Juilliard eru Robert og Nicholas Mann. Hulda hefur komið fram sem einleikari og með öðrum við ýmis tækifæri á Íslandi, í Noregi, Sviss, Bandaríkjunum og Mexíkó. Hún hefur einnig leikið einleik með ýmsum hljómsveitum, m.a. tvívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hulda hefur frá haustinu 2006 verið þess heiðurs aðnjótandi af leika á fiðlu úr smiðju Vincenzo Sannino, sem smíðuð var um 1920, með boga smíðuðum af Victor Fetique. Hvort tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton Foundation í Chicago og hefur einnig hlotið afreksstyrk frá stofnuninni.
Ástríður Alda Sigurðardóttir hóf nám í píanóleik 6 ára gömul hjá móður sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Vorið 1999 lauk hún einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000-2003 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University - Jacobs School of Music í Bloomington þar sem hún lauk Artist Diploma með hæstu einkunn. Ástríður hefur sótt fjöldann allan af námskeiðum og einkatímum í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler. Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum. Meðal annars hefur hún leikið einleik með Internationales Jugendsinfonie-orchester Elbe-Weser í Þýskalandi, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Ástríður er meðlimur í Elektra Ensemble sem var m.a. tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og tangósveitinni Fimm í tangó sem flytur finnska og íslenska tangótónlist. Árið 2010 gaf Ástríður út sólóplötuna CHOPIN sem inniheldur fjórar ballöður tónskáldsins auk sónötunnar í b-moll. Einnig hefur hún gefið út, ásamt söngvurunum Eyjólfi Eyjólfsyni og Ágústi Ólafssyni, geisladiskinn ALDARBLIK, sem hefur að geyma mörg af ástsælustu einsöngslögum þjóðarinnar.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.08.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Distance de fée - Tónlistarhátíð unga fólksins 2012 | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 2.500 kr. |

