- Þú ert hér »
Björn Thoroddsen og félagar

Björn Thoroddsen gítarleikari hefur á undanförnum misserum látið að sér kveða í hinum stóra gítarheimi og verið á tóneikaferðalögum m.a. í N-Ameríku og Evrópu. Björn hefur í gegnum árin verið gestgjafi á velheppnuðum gítarkvöldum Jazzhátíðar Reykjavíkur þar sem gestir hans hafa verið meðal annarra Ulf Wakenius, Kazume Watanabe og Philip Catherine, auk rjómans af innlendum gítarhetjum.
Björn býður upp á blandaða dagskrá, allt frá popplögum yfir í tónlist af nýútkomnum disk þar sem hann leikur jöfnum höndum á rafgítar og kassagítar. Á tónleikunum í Iðnó er hljómsveitin skipuð norska bassaleikaranum Ola Andersson og íslenska trommuleikaranum Jóhanni Óskari Hjörleifssyni, en báðir hafa þeir glæsilegan feril að baki.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 30.08.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Björn Thoroddsen og félagar - Jazzhátíð Reykjavíkur 2012 | Iðnó | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |


